Söngkonan Rihanna er í viðtali í febrúarhefti Rolling Stone tímaritsins og þar talar hún um samband sitt og Chris Brown og segir að hlutirnir séu öðruvísi núna en fyrir fjórum árum síðan.
Margir aðdáendur söngkonunnar voru hissa þegar þau tóku saman aftur á síðasta ári. Söngkonan ákvað að hætta að láta skoðanir annara hafa áhrif á sig og fylgdi hjartanu í staðinn. Rihanna er hörð á því að samband þeirra sé öðruvísi núna en fyrir fjórum árum.
Rihanna virðist staðfesta það að þau séu byrjuð aftur saman í viðtalinu en þau hafa sést mikið saman út á lífinu, úti að borða og á körfuboltaleikjum en hafa ekki fyrr en núna staðfest að þau séu orðin par aftur.
Rihönnu leið mjög illa eftir að Chris réðst á hana fyrir fjórum árum síðan og vildi ekkert annað en illt í hans garð en hún var þó ennþó mjög ástfangin af honum. Rihanna segir einnig að hún hafi viljað láta hann finna fyrir því hvernig það væri að missa hana úr lífi sínu og finna fyrir afleiðingunum. Síðan ákvað hún að byggja sjálfa sig upp því henni leið skiljanlega mjög illa eftir að þetta gerðist.
Söngkonan frakka vissi þó að aðdáendur hennar yrðu svekktir með ákvörðun hennar að gefa Chris annað tækifæri, hún hefur einnig verið harðlega gagnrýnd í fjölmiðlum en hún ákvað að fylgja hjartanu engu að síður.
Rihanna segir að það hafi verið mikilvægt fyrir sig að vera hamingjusöm og hún ákvað að láta ekki skoðanir annara hafa áhrif á sig og jafnvel ef að samband þeirra væru mistök þá væru það hennar mistök! Hún segir einnig að samband þeirra sé allt annað núna heldur en fyrir fjórum árum síðan en að hennar sögn hafa þau hafa þroskast töluvert á þessum fjórum árum.
Í dag ræða þau málin í staðinn fyrir að rífast stanslaust, þau vita hvar samband þeirra stendur og vilja ekki missa það.
Rihanna segir einnig að Chris lifi ekki við þann lúxus lengur að klúðra hlutunum, hann veit af því og er á góðri leið að bæta sig daglega.
Rihanna segir einnig að Chris hljóti að líða illa yfir því sem gerðist. Þess má geta að Chris er ennþá á skilorði fyrir að hafa lagt hendur á söngkonuna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig