Rihanna er dugleg að setja myndir af sér á instagram, hvort sem hún er að djamma, slaka á uppí rúmi eða njóta lífsins með vinum sínum – alltaf er hún flottust!
Ég er nú ekkert alltof hrifin af því þegar hún póstar myndum af sér reykjandi – verður hún ekki að muna að miljónir ungra kvenna líta upp til hennar? – Rihanna elskar einfaldlega að hneyksla fólk og tekst það í flestum tilvikum!
Ég dýrka’na samt!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.