Rihanna ætlar að bjóða Chris Brown með sér á heimaslóðirnar á Barbados yfir áramótin en þar býr hennar nánasta fjölskylda.
Rihanna hefur hingað til haldið því fram að þau Chris væru bara vinir en nú er hún æst í að sýna vinum og fjölskyldu hvað hann er “breyttur” svo hún er búin að bóka þau bæði inn á fimm stjörnu villu á Barbados svo að allir geti “tengst” betur.
Hún er líka búin að bjóða móður Chris yfir um áramótin svo að fjölskyldurnar geti verið saman.
Því meira sem almenningur gagnrýnir hana fyrir að hafa tekið aftur saman við Chris, því staðráðnari virðist hún í að vera með honum og gera það sem henni sýnist.
“Það skilur þetta enginn en hún er sannfærð um að þau Chris séu sálufélagar og að hann sé stóra ástin í lífi hennar,” sagði heimildarmaður.
“Hún er búin að panta lúxus gistingu fyrir hann og mömmu hans á Barbados yfir áramótin svo að þau geti öll haft það náðugt”.
Chris var dæmdur fyrir alvarlega líkamsárás á Rihönnu í Febrúar 2009 og burtséð frá öllum viðvörunum hefur hún tekið hann aftur og telur sig vera að gera rétt. “Þau vilja sýna öllum fram á hvað allt sé breytt.”
Chris réðist á Rihönnu kvöldið fyrir Grammy verðlaunaafhendinguna 2009. Hann var í kjölfarið dæmdur til að fara í meðferð fyrir karla sem beita heimilisofbeldi og vinna 1.400 kls í samfélagsþjónustu.
Síðar sendi hann frá sér myndband þar sem hann bað Rihönnu afsökunar og fyrir skemmstu fékk hann sér húðflúr af henni lúbarinni.
[poll id=”61″]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.