Það kom öllum á óvart þegar leikkonan Rachel Weisz og leikarinn Daniel Craig tilkynntu að þau væru gift en þau eru búin að þekkjast frá árinu 1994.
Þetta kemur meðal annars fram í viðtali sem birt er í júlíhefti breska Vogue en þar segir leikkonan einnig að ástarneistarnir hafi nú ekkert skotist á milli þeirra fyrir tæpum tuttugu árum.
Rachel fer ekkert út í brúðkaupið sjálft í viðtalinu en segir að það hafi verið hannaður afar fallegur brúðarkjóll á hana. Hún gefur hinsvegar ekkert upp um hver hannar hann.
Engar brúðarmyndir hafa lekið út og var athöfnin fámenn og prívat eins og þau eru sjálf. Hún segir að þau Daniel fari oft saman í búðina þar sem þau búa í New York.
Hún geti farið án þess að dulbúast en Daniel verði kannski að smella derhúfu á höfuðið til þess að vera ekki stoppaður af fólki sem þekkir hann.
Langar að læra að elda
Rachel segist ekki vera mikið fyrir það að elda, hún hafi hreinlega ekki nógu góðan grunn í eldamennsku til að getað hent nokkrum kryddum á pönnu með kjötinu og úr því verði dýrindis máltíð en hana langar til að læra það og segir að það muni koma að þessu einn daginn.
Hleraði viðtalstíma geðlæknisins
Mamma Rachel var geðlæknir sem starfaði heiman frá sér og á meðan hleruðu þær systurnar viðtalstímana segir Rachel í viðtalinu og hlær að minningunni. Móðir hennar Edith vildi að Rachel yrði lögmaður og leikkona en Rachel segist hafa of mikið ímyndunarafl til að þetta tvennt geti farið saman.
Læknir sem nuddar munninn
Frú James Bond (eins og blaðakonan kallar hana) lítur afskaplega vel út og ber aldurinn vel en hún heldur því fram að hún hafi ekki farið í neinar lýtaaðgerðir. Það mun vera frábærum húðlækni að þakka hversu vel hún lítur út en hann prófar ýmsar nýjar aðferðir svo sem að nudda inn í munn hennar og sitthvað fleira til þess að viðhalda æskuljómanum.
Mikil leynd yfir Bourne Legacy myndinni
Rachel er á fullu þessa dagana að kynna nýjustu kvikmynd sína The Bourne Legacy en þar fer hún með aðalhlutverk ásamt Jeremy Renner. Rachel gat þó lítið sem ekkert gefið upp um hvað myndin fjallaði í viðtalinu eða sagt frá “plottinu” enda fer kynningin fram eftir kúnstarinnar reglum í fjölmiðlum.
Náttúrulegir vöðvar
Hér að neðan er myndasyrpa úr tímaritinu þar sem að Rachel er náttúrulega förðuð og gullfalleg en hún segir einnig frá því að hún stundi pilates og lyfti ekki mikið þar sem að hún er náttúrulega “mössuð” og ef hún færi að lyfta þá yrði hún eins og vaxtaræktarkona.
Gullfalleg manneskja að innan sem utan og miðað við lestur viðtalsins, afar jarðbundin, indæl og laus við allan hroka.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig