Söngkonan Pink er í viðtali við tímaritið Redbook og þar ræðir hún allt milli himins og jarðar, fegurðina og frægðina.
Pink segir að hún hafi alltaf verið álitin karlmannleg og hún hafi í raun og veru aldrei verið talin falleg enda sé það líka eitthvað sem hún sé ekki að sækjast eftir, “fegurð” geti verið svo margt.
Pink segir að henni finnist hún vera falleg þegar hún er heimavið í leðurbuxunum sínum og eiginmaður hennar komi síðan og klípi í rassinn á henni. Henni finnst einnig heimurinn vera fallegri eftir að hún eignaðist dóttir sína og hún sé það fallegasta sem til er.
Pink segir að lífið eigi að snúast um gleðina, það sé hennar markmið. Hún vill vera heilbrigð og sterk, geta hjálpað til, nota það sem hún hefur og elska. Hún er svo heppin að það er mikil gleði í lífi hennar núna en hún er hamingjusamlega gift og á litla stelpu.
Söngkonan er ekki hin “venjulega” forsíðustúlka og margir hafa sagt við hana að hún muni ekki ná langt vegna þess að hún sé eifaldlega ekki nógu sæt.
Pink segist alveg vera sátt við að vera ekki “sæta” stelpan, hún viti hverju hún er sterkust í og einbeiti sér að því. Hún vinnur mikið, hefur sönghæfileika, sé fyndin og jafnframt góð manneskja.
Pink og eiginmaður hennar Carey skildu í nokkra mánuði árið 2007 en tóku aftur saman vegna þess að þau áttuðu sig á því að þau gætu ekki verið án hvors annars. Parið skildi ekki formlega og þau skrifuðu aldrei undir skilnaðarpappírana.
Pink fékk Carey aftur með því að sýna honum myndaalbúm sem hún hafði unnið að mánuðum saman, í því voru myndir og bréf frá því að þau voru saman og á næst síðustu síðunni sýndi hún honum mynd af sér þar sem búðið var að skera hana á háls (myndin var úr B-mynd sem Pink lék einu sinni í) og sagði svona líður mér án þín.
Lokablaðsíðan innihélt einnig mynd af barni og undir myndinni stóð “framtíðin er enn óráðin”.
Þau eru afar hamingjusöm í dag og njóta lífsins með litlu stúlkunni sinni.
Hér að neðan er nýjasta myndband Pink en Carey leikur með henni í myndbandinu í heitri ástarsenu.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=Cgd9cdB0gFg[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig