Söngkonan Pink er komin aftur í sviðsljósið eftir fæðingu dóttir sinnar Willow -og hún er í flottara formi en nokkru sinni fyrr.
Söngkonan bætti á sig um 20 kílóum þegar hún var ólétt og Pink segir að sér hafi fundist ostakökur afar góðar á meðgöngunni, einnig allt sem var súrt; hún hámaði í sig súrt Skittles, Key lime pie og súrt hlaup.
Stöllurnar Jillian Michaels og Jeanette Jenkins komu Pink aftur í form eftir barnsburðinn og að sögn Pink hefur enginn látið hana puða og púla jafn mikið og þær tvær. Þjálfararnir eru hörku kroppar sjálfar og Pink segir að þær hafi verið innblástur til þess að komast í gott form aftur.
Flestir vita að Pink var algjör villingur á sínum yngri árum. Hún segir í viðtalinu við Shape Magazine að hún hafi byrjað að reykja þegar hún var aðeins 9 ára gömul og hafi verið komin í pakka á dag aðeins 12 ára!!
Hún hætti þó ekki að reykja fyrr en hún varð ólétt og hefur ekki reykt síðan. Núna finnst henni sígarettulykt ógeðsleg en hún bætir því einnig við að hún hafi á einhverjum tímapunkti í lífi sínu verið háð Kókaíni, Ecstacy (alsælu) og sýru, eða LSD.
Já það er ekkert annað!
Mikið er nú gott að Pink er komin á rétta leið og gangi vel í einkalífi sem og á framabrautinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig