Peaches Geldof (23) var á göngutúr með 4 mánaða gamaln son sinn um daginn þegar kerran hans valt á gangstéttinni.
Peaches Twittaði seinna um daginn að gangstéttirnar væru hræðilegar og fullar af holum, hann hafi verið spenntur í kerruna en þunginn af líkama hans hafi náð að losa beislið.
Henni tókst að ná honum heilum og höldnu af stéttinni en hætti samt sem áður ekki að tala í símann á meðan að öllu þessu stóð, að sjálfsögðu náðu papparassar þessu öllu saman á mynd og hefur Peaches verið harðlega gagnrýnd af öðrum selebbum. Jack Osborune Twittaði meðal annars að hún væri algjör **… og hann væri til í að segja henni til syndanna.
Sonur hennar Astala slasaði sig ekki við veltuna og að hennar sögn grét hann ekki einu sinni og er hress og kátur núna.
Þetta er svo sannarlega ein versta martröð foreldra enda eiga kerrur og beisli að þola ýmislegt. Það er gott að drengurinn er heill á húfi en við skulum bara vona að Peaches fylgist betur með í næsta göngutúr og haldi fast í kerruna.
____________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig