Ég hef stundum pælt í því hvernig ríka og fræga fólkið heldur hópinn.
Það kann þetta, skilur hvernig það er að vera ríkur og frægur, blindast af papparassa ljósum hvert sem þú kemur, eiga ógeðslega mikinn pening, eyða hálfum deginum í að líta vel út og hinum helmingnum í að mæta í partý… þess á milli vinna annað slagið við að leika í bíómyndum sem þú færð brjálæðingslega mikinn pening fyrir. Þar fyrir utan er auðvitað nauðsynlegt að eiga vini sem lúkka vel með manni á myndum… eða hvað?
Hér eru nokkrar vinkonur sem hafa margar kynnst í gegnum vinnuna (leikarar) eða í glamúrus Hollywood partýum. Sumar hafa haldið vinskapnum árum saman… og svo eru það hinar sem þola ekki hvor aðra en halda kúlinu fyrir myndavélarnar.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.