Hótelerfingin Paris Hilton er á ferð um Ástralíu þessi misserin og er yfir sig hrifin.
Hún er ekki bara heilluð af fólki, fatnaði og umhverfinu heldur er hún alveg ástfangin af dýrunum.
Paris, sem er ötull bloggari, fékk aðstoðarmanneskju til að taka þetta myndband af sjálfri sér þar sem hún knúsar litla vallabíu en Paris er mikill dýravinur eins og frægt er orðið og á m.a. marga chihuahua hunda.
(Takið eftir því þegar hún lítur hissa upp og spyr hvað sé í gangi vegna hávaða sem berst af götunni. Svarið er að það sé verið að slást við papparassana).
Paris og vallabían…
___________________________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.