Glamúrgellan og partípinninn Paris Hilton fær ekki að halda áfram með sjónvarpsþáttinn sinn The World According to Paris.
Ástæðan er sú að áhorfendur eru víst allt of fáir, eða “aðeins” 400.000 manns sem er um 100.000 fleiri en búa á þessu litla landi okkar.
Þá er það spurning hvað Paris gerir næst? Hún mun klárlega halda áfram að versla og safna chihuahua hundum og koma sér í kjánaleg vandræði annað slagið en hvað ætlar hún að gera?
Hér eru nokkrar myndir af þessum ofdekraða hótelerfingja á vappinu í Los Angeles í gær.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.