Ofurfyrirsætan Miranda Kerr og Orlando Bloom skelltu sér í smá frí til Cancun með litla son sinn Flynn enda gott að taka sér frí með fjölskyldunni milli anna.
Orðrómur hefur verið á kreiki að parið sé að skilja en þau virtust alsæl og mjög hamingjusöm saman á ströndinni og skiptust á að fara með Flynn litla í sjóinn og busla með honum.
Það er nóg að gera hjá Miröndu þessa dagana en hún er fyrirsæta hjá Victoria’s Sectet og í stöðugum myndatökum og kynningarferðum á vegum fyrirtækisins, það hefur hinsvegar ekki bólað mikið á Orlando undanfarið í kvikmyndum en hann er þó með einhver hlutverk í skoðun.
Þegar þú ert í sviðsljósinu þá er afar erfitt að eiga einkalíf og margir skiptast á því að smjatta og skálda sögur um þig og fjölskyldu þína.
Þetta er örugglega sérstaklega erfitt þegar báðir aðilarnir eru frægir og fagrir eins og í þeirra tilviki en papparassarnir láta þau ekki vera og elta þau á röndum hvert sem þau fara.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig