Michael Lohan pabbi Lindsay komst að því í sjónvarpsþætti á dögunum að hann ætti sautján ára gamla dóttur.
DNA próf leiddi í ljós að Michael (52) á stúlku að nafni Ashley Kaufmann en Michael átti í ástarsambandi við móður hennar fyrir sautján árum síðan. Á meðan var hann giftur Dinu Lohan!
Michael á einnig von á barni bráðlega með hinni 29 ára gömlu Kate Major.
Ashley var ekki of ánægð með að fá að vita faðernið og neitaði að taka utan um Michael eftir að umslagið með DNA prófinu var opnað og hún var búin að segja fyrir það að hún vildi alls ekki vera hluti af Lohan fjölskyldunni eða Lohan” lestarslysinu” eins og hún orðaði það.
Lindsay á yngri systur sem heitir Cody og Ashley er á milli þeirra systra í aldri. Dina og Michael áttu samtals fjögur börn saman þannig að Michael á von á sínu sjötta barni von bráðar.
Móðir stúlkunnar segir að Michael hafi alltaf vitað af tilvist Ashley, eða frá því að hún fæddist, en hefur aldrei viljað hafa neitt sambandi við þær mæðgur og aldrei rétt þeim hjálparhönd. Michael er búinn að vera á leiðinni í DNA próf í sautján ár og lét loksins verða af því núna en Ashley og móðir hennar eru báðar bálreiðar út í hann og vilja ekkert með hann hafa.
Það er aldrei lognmolla í kringum Lohan famelíuna og stóra spurningin er bara sú-hvað næst?? Hér að neðan getur þú séð brot úr þættinum þegar Ashley opnar umslagið.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=vBmhSnWDS1Y[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig