Þær eru nokkrar dömurnar sem hafa skellt sér í svæfingu og tilheyrandi til að líta betur út en enginn hefur tærnar þar sem Pete Burns hefur hælana.
Pete Burns varð einu sinni frægur fyrir að syngja lagið You spin me right round (baby right round like a record baby right round round round… manstu?)… en svo hætti lagið að vera vinsælt og hann hætti að vera frægur og þá fór allt í rugl.
En Pete fann lausnina! Hann vaknaði einn morgunin og ákvað að ef hann gæti litið út eins og Bratz dúkka þá yrði hann hamingjusamur. Eða einskonar afkvæmi Cher, Októmömmunnar og Bratz. Nice try Pete!
Á myndunum má sjá Pete og eiginmanninn úti að versla, meðal annars eitthvað fínt frá Vivienne Westwood sem hefur aftur á móti aldrei farið í aðgerð og er bara svöl. Líklegast var hann að kaupa sér afmælisgjöf því Pete er 52 ára í dag. Til hammó með ammóið Pete.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.