Það virðist ekki vera neitt tiltökumál að koma nakin fram í glysborginni handan við hafið og flestir frægir virðast gera það einhvern tímann á ferlinum.
Hvort sem nektin er notuð til að vekja athygli á starfsemi PETA, selja ilmvatn eða til gamans í myndaþætti fyrir tímarit þá virðast ansi margar stjörnur vera tilbúnar að láta mynda sig allsberar.
Myndirnar eru fallegar, vel útfærðar og líkami stjarnanna fær að njóta sín, ég meina ef ég væri svona svakalegur hasarkroppur þá er ég ekki alveg viss um að ég væri yfirleitt í fötum…-nei, nú er ég að grínast en stjörnurnar hafa mikið fyrir því að líta vel út og af hverju ekki að eiga flotta mynd af sér á Evuklæðunum þegar þú ert á hátindi frægðarinnar?
Það er pottþétt Meistaramánuður alla mánuði ársins hjá þessum stjörnum sem eru olíubornar og sexý í myndasafninu…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig