Októmamman Nadia Suleman hefur margsinnis komist í fréttirnar eftir að hún fæddi börnin sín átta og nú síðast fyrir að framleiða sjálfsfróunarmyndband.
Hún hefur reyndar lýst því yfir að hún muni aldrei leika í klámmyndum, sama hversu erfiður fjárhagurinn reynist, en sjálfsfróunarmyndbandið skilgreinir hún að sögn TMZ ekki sem klámmyndaleik heldur einhverskonar fræðslumyndband.
Engu að síður var heilt tökulið á staðnum þegar Nadia fór í sína fyrstu töku. Að sögn heimildarmanna var hún stressuð og óörugg til að byrja með en náði fljótlega tökum á aðstæðum og stóð sig eins og hetja. Aðrir ‘ekki klámmyndaleikarar’ voru á svæðinu og hjálpuðu Nadiu áfram í þessu.
Suleman ætlar að taka upp fleiri atriði af ‘ekki klámmyndum’ í næstu viku en hún vonast til að fá greitt fyrirfram. Októmamman varð nefninlega gjaldþrota fyrr í þessari viku.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.