Victoria´s Secret fyrirsætan Gisele Bundchen og eignmaður hennar Tom Brady eignuðust litla dömu síðastliðinn miðvikudag.
Gisele og Tom gáfu út fréttatilkynningu sem hljóðaði svo:
Við erum svo heppin að hafa fengið að upplifa kraftaverk enn og aftur við fæðingu dóttur okkar og við erum þakklát fyrir það að fá að vera foreldrar annars engils. Litla daman hefur fengið nafnið Vivian Lake.
Gisele og Tom eiga fyrir soninn Benjamin sem er tveggja ára og Tom átti áður son sem heitir John, fimm ára. Það verður því nóg að gera hjá hjónunum á næstunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig