Ótrúlegt en satt er ofur-folinn George Clooney orðinn fimmtugur! – hann átti afmæli í gær þann 6 maí.
Clooney eldist bara helv… vel verð ég að segja. Það eru ekki mjög margir fimmtugir menn sem mér finnst aðlaðandi.
Hann hefur TVISVAR verið kosinn kynþokkafyllsti maðurinn af People magazine sem er mjög mikill heiður í Hollywood.
George og Brad Pitt eru þeir einu sem hafa einnig fengið þann heiður tvisvar.
Til hamingju með afmælið George!
Nokkrar myndir af kyntröllinu:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.