Bara frá því að Jennifer Aniston leit fyrst á Justin Theroux hafa vinsældir hans rokið upp svo um munar.
Gaurinn er orðin svo vinsæll að heill myndaþáttur, bara með honum, var undirlagður í nýjasta heftinu af strákablaðinu GQ. Þar talar hann m.a. um hvernig það er að vera með skegg.
“Maður fær allskonar nýja kæki. Til dæmis byrjar maður að rúlla upp á yfirvaraskeggið þegar manni leiðist,” sagði Justin og bætti því við að það væri mismunandi eftir týpum hvort konur væru að fíla skeggið eða ekki:
Sumar gellur fíla þetta. Aðrar gellur fíla þetta ekki.
Merkilegt nokk var hann svo sléttrakaður nokkrum dögum eftir að viðtalið birtist á prenti. Kannski að nýja kærastan hafi ekki alveg verið að fíla kommentið um “sumar gellur”?
Bíbí finnst hann allavega sætur – með og án skeggs. Aðeins sætari með skeggið samt. Hvað finnst þér? Myndirðu bað’ann?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.