Ef þú ert Sex and the City aðdáandi skaltu halda þér rembingsfast áður en þú lest þessa frétt: Það er ný þáttaröð af Sex and the City væntanleg á sjónvarpsskjáinn!!!
Bíbí hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að Sarah Jessica Parker hafi gefið grænt ljós á næstu þáttaröð og hinar leikkonurnar eru allar til í að vera með. Sarah Jessica mun jafnframt vera framleiðandi þáttanna.
Endanleg niðurstaða og útkoma með þetta allt mun þó liggja á Darren Starr, manninum sem upprunalega kom þáttunum á skjáinn.
Ástæða þess að Sex and the City hefur verið samþykkt aftur sem sjónvarpsþáttaröð mun vera misheppnuð velgengni kvikmyndanna en SATC 2 fékk hroðalega dóma.
Aðdáendur hafa væntanlega heyrt af annari kvikmynd sem var komin á teikniborðið en hún átti að fjalla um vinkonurnar þegar þær voru unglingar. Nú hefur þessi mynd verið flautuð af þar sem til stendur að gera nýja seríu fyrir sjónvarp og það er á HREINU að henni verið tekið fagnandi.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.