Ætli brúðkaup ársins hafi ekki verið þegar Vilhjálmur Bretaprins gekk að eiga hana Kötu sína?
Það ætlaði allt um koll að keyra og bretar tóku menningarnótt x 100 á þetta með því að fjölmenna í bæinn með lúðra og fána og fagna því að prinsinn væri nú gengin út. Allskonar varningur var framleiddur af þessu tilefni og meira að segja gastu keypt sérstakan ísskáp með mynd af brúðhjónunum.
En það voru auðvitað fleiri sem giftu sig á þessu ári. Til dæmis giftist hinn súper-karlmannlegi Daniel Craig henni Rachel Weisz meðan aðeins fjórir gestir fylgdust með og svo gifti hún Kate Moss sig líka með pompi og prakt. Kim Kardashian litla giftist sínum stóra manni og Lily Allen gifti sig líka í sætum, vintage kjól. Það sama má segja um Reese Witherspoone sem gifti sig án þess að vera með mikil læti.
Bíbí gifti sig hinsvegar ekki þetta árið – en ég læt þig vita þegar ég ætla að gera það og verð þá komin með ísskáp, servíettur, boli, hatta, regnhlífar, skó, hnakka og seríóspakka með ástarmyndum af mér og mínum heittelskaða.
Sæll hvað það verður töff!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.