Yfirleitt þegar vaxmyndastyttur af frægum eru afhúpaðar þá þykir það mikill heiður fyrir þann ‘celebb’ en stundum misheppnast stytturnar og þá er það alls ekki eins smart….
Ég rakst á þessar myndir og varð að deila þeim. Sumar eru vægast sagt hööörmulegar, þá helst stytturnar af Seinfeld genginu, Prince William og fullu Opruh. Smellið á myndirnar fyrir neðan til að skoða ‘listaverkin’ nánar.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.