Það er á allra vörum að þau Katie Holmes og Tim Cruise séu að skilja enda voru þau einkar áberandi í fjölmiðlum og virtust fara um allt saman.
Hér eru sjö staðreyndir um skilnaðinn…
1. Allar fyrrverandi eiginkonur Tom Cruise voru 33 þegar þær skildu við hann.
2. Katie þarf að sanna það að Tom er ekki hæfur sem faðir þar sem hún sækir um fullt forræði yfir dóttir þeirra Suri- hún þarf að færa rök fyrir því að Suri sé betur sett hjá henni frekar en pabba sínum.
3. Dómarinn sem dæmir í forræðisdeilu þeirra skoðar það hvort Tom hafi tekið mikinn þátt í lífi hinna barna sinna þeirra Connor og Isabellu-en hann á þau með fyrrverandi konu sinni Nicole Kidman. Þetta getur spilað stóran þátt í forræðisdeilunni.
4. Katie er í sterkari stöðu þar sem að hún sótti um forræði í New York en þar er tekið meira tillit til þess ef maki heldur framhjá eða hefur beitt maka sinn ofbeldi, hinsvegar vill Cruise fá þetta í gegn í Californíu þar sem hann hefur sterkari stöðu þar.
5. Tom var á Íslandi þegar Katie sótti um skilnaðinn og kom þetta honum í opna skjöldu – hann er niðurbrotinn eftir fréttirnar.
6. Vísindakirkjan getur hafa átt sinn þátt í þessu. Tom er strangtrúaður í Vísindakirkjunni og fréttir herma að Katie hafi fundist vera nóg komið í þeim málefnum og vildi ekki að dóttir þeirra myndi alast upp í slíku umhverfi.
7. Þau voru ofur ástfangin og hvert sem þau fóru voru þau í faðmlögum og kossaflensi þegar þau voru að byrja saman -hver man ekki eftir Opruh þættinum eftirminnilega-hér að neðan má sjá myndbandið.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=znsXA2aTXCE[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig