Ástralska leikkonan Nicole Kidman er í viðtali við tímaritið WHO þar sem hún ræðir meðal annars hjónaband sitt og Tom Cruise.
Nicole segir að hún hafi gifst Tom sig afar ung og að hlutirnir hafi gengið hratt fyrir sig, hún sér alls ekki eftir þessum tíma því þau fengu tvö dásamleg börn úr hjónabandinu. Hún segir að hún hafi átt frábært hjónaband í langan tíma en á meðan skilnaðinum stóð hugsaði Nicole að hún hefði aldrei á ævi sinni verið jafn einmana. Hún átti þó frábæran áratug með Tom að eigin sögn og óskar öllum sem hafa átt þátt í lífi hennar á einhverjum tímapunkti góðs gengis því henni finnst mikilvægt að lifa lífinu í hamingju og ást.
Orðrómur hefur verið um að Nicole hafi talað við Katie eftir skilnaðinn við Tom en Nicole segir að það sé algjör þvæla -hún talaði aldrei við Katie og átti engan hlut að máli í skilnaðinum.
Nicole er í dag gift kántrísöngvaranum Keith Urban sem tók nýlega sæti sem dómari í American Idol. Nicole hélt í langan tíma að hún myndi aldrei finna hamingjuna aftur en það gerist samt! Hún tekur ekki hjónaband þeirra og ást sem sjálfsagðan hlut og hefur alltaf í huga að Keith er maðurinn sem hún vill verða gömul með.
Nicole elskar að vera mamma en móðurhlutverkið hefur verið stór hluti af lífi hennar í langan tíma og þó Nicole sé orðin 45 ára, þá líður henni samt ekki eins og aldurinn segir til um.
Nicole segir að það sé börnunum að þakka, þau færi henni gleði og hamingju og séu hápunktur tilveru hennar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig