Nicole Kidman er ein af þeim sem er EKKERT hrædd við lýtalækna og líklegast getur hún áhafnað líkama sínum til Tupperware verksmiðjunnar þegar hún deyr. Það yrði hægt að búa til nýja línu úr henni af seríósdöllum.
Nicole er nefninlega að verða með þeim plastlegustu í Hollywood og hér virðist hún alveg búin að ná tökum á dúkkulúkkinu sem er auðvitað bara fínt. Af hverju ekki að taka þetta alla leið?
Big Hair og hvítir hælaskór, ógó barbílegt, nema hún er í skyrtu af Ken. Reyndar finnst mér hún alveg vera að púlla þetta 60’s style. Flott svona túberað ljóst hár, flott meiköpp og auðvitað eeeer hún ekkert í þessari skyrtu. Hún hefur fengið hana í láni á milli atriða en Nicole er þessa dagana í New Orleans borg við tökur á myndinni Paperboy með John Cusak.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.