Hin stórglæsiega liekkona Natalie Portman (gellan úr Star Wars) og danshöfundurinn Benjamin Millepied eru trúlofuð og alsæl enda eiga þau von á barni en þau kynntust við gerð myndarinnar The Black Swan en Natalie hlaut Golden Globe verðlaunin í gærkvöldi fyrir leik sinn í bíómyndinni.
Von er á barninu í vor og segist hún ætla að draga sig í hlé frá sviðsljósinu eftir fæðingu barnsins en Natalie hefur lengi talað um að sig langi til að taka sér frí frá vinnunni sem hefur verið stanslaus í nokkur ár.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.