Eins og við vitum þá voru Emmy verðlaunin afhend þarsíðasta sunnudag og hægt er að sjá myndir af kjólunum hér. Ég skoða oft myndir frá rauða dreglinum á verðlauna afhendingum og þá sérstaklega smáatriði eins og förðun, neglur, hárið og skart. Það er oft skemmtilegur innblástur…
Ég fílaði heildar útlitið hjá Kelly Osbourne… það er svo skemmtilegt hvað hún blómstrar þessa daga en ég verð samt að segja að ég missti næstum andlitið þegar ég sá hvað handsnyrtingin hennar kostaði fyrir þetta kvöld: 31.215.000,00 kr!
Já Kelly borgaði 250.000 bandaríkjadali fyrir handsnyrtingu með naglalakki sem unnið úr svörtum demöntum. Það er skartgripamerkið Azature sem hannaði þetta dýra lúxus naglalakk. Kelly setti mynd á Instagram hjá sér um flotta naglalakkið og var hress með árangurinn.
Ef þetta er aðeins of dýrt þá er til ódýrari 25 dollara útgáfa af naglalakkinu, rúmar 3000kr er talsvert viðráðanlegra fyrir meðalmanneskjuna.
Katla lærði tísku og ljósmyndaförðun hjá Línu Rut haustið 1994. Hún hefur mikinn áhuga á öllu sem tengist förðun, húð, tísku,útliti og hönnun. Katla hefur einnig sótt ljósmyndanámskeið, lært fatahönnun og saum og lokið einkaþjálfaranámi.
.