Mamma Kardashian systranna nýtir svo sannarlega allar leiðir til að láta vörumerki fjölskyldunnar hala inn nokkrum dollurum en það nýjasta er spjallþáttur í umsjón hennar.
Spjallþátturinn, sem fer í loftið í sumar, mun bera heitið “Kris” og mun hann innihalda ýmislegt spennandi – svo sem heimsóknir fræga fólksins, tísku, fegurð og ýmis konar lífstílsmálefni.
Stjórnendur Fox sjónvarpsstöðvarinnar eru alsælir með að fá Kris með sér í lið og segja að hún sé einstaklega úrræðagóð, góð mamma og gangi vel í viðskiptum. Stjórnendurnir segja að Kris sé sérlega góð í að gefa ráð hvort sem þau séu um fjölskylduna eða önnur mál, hún sé hreinskilin og það besta mun vera að hún þarf ekki handrit til þess að geta stjórnað svona þætti, hún sé einfaldlega fædd í hlutverk þáttarstjórnanda.
Kris segir sjálf að þetta sé langþráður draumur hennar, hana hafi dreymt um að verða þáttastjórnandi alla sína ævi og hún hreinlega geti ekki beðið eftir að ævintýrið byrji.
Stóra spurningin er hinsvegar hvernig Kardashian systurnar eiga eftir að taka þessu? Þeim finnst mamma sín vera með alltof mörg járn í eldinum en hún er umboðsmaður allra fjölskyldumeðlimanna og sér um öll þeirra mál hvort sem þau eru fjárhagsleg, einkamál eða tengjast viðburðum þannig að það er óhætt að segja að Kris hafi nóg að gera.
Miklar slúðursagnir hafa líka verið á sveimi að Kris og Bruce séu að skilja en þau vísa því algjörlega á bug og segja að allt sé í himnalagi og að slúðurblöðin séu bara að skálda til þess að auka söluna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig