Ég skrifaði um það hér að Mila Kunis hefði verið kosin kynþokkafyllsta konan á lífi af Esquire USA en fyrirsætan Miranda Kerr fékk þann heiður af UK útgáfu blaðsins.
Undirbúningur ofurfyrisætunnar og hinna englanna fyrir Victoria’s Secret tískusýninguna er í fullum gangi en sýningin verður stútfull af flottum nærfötum og frægum skemmtikröftum.
Miranda segist hinsvegar ekki fylgja neinum tískustraumum þegar kemur að því að klæða sig, henni finnst þó mikilvægt að flíkin sé klassísk og tímalaus því ef það er til staðar þá getur ekkert klikkað og maður skammast sín ekki eftir nokkur ár.
Daman elskar líkama sinn og hugsar afar vel um hann með hollu fæði, jóga og hreyfingu. Miröndu finnst afar mikilvægt að fagna kvenlegum línum sínum og því sem manni var gefið og er því alls ekki á því að maður eigi fela kroppinn.
Og já, þvílíkur kroppur sem hreinlega blómstrar á þessum myndum og Legolasinn Orlando Bloom má teljast heppin fýr að hafa nælt sér í þessa flottu og duglegu konu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig