Leikkonan Mila Kunis er forsíðusnót Glamour nú í ágúst en þar er hún meðal annars spurð um stefnumót, slúðursögur og það að hafa þurft að létta sig fyrir hlutverk sitt í Black Swan.
Mila segir að hún væri pottþétt búin að prófa að fara á internetstefnumót ef hún væri ekki jafnfræg og hún er, það sé miklu auðveldara að fara bara á stefnumótasíður og skoða gaura þaðan heldur en að fara á bar og vesenast þar fram eftir öllu.
Hún hefur meira að segja verið dugleg að skoða stráka fyrir vinkonur sínar og sé snillingur í því að búa til flottan “prófíl” fyrir þær, henni finnst þetta hrikalega gaman og segir að þetta sé líkt því að versla á netinu!
Mila segir einnig að hún myndi aldrei setja sjálf upp síðu þar sem að hún væri ekki með mynd af sér því það yrði slúðursprengja en að hennar sögn hefur hún aldrei farið á stefnumót –það sé mjög erfitt vegna frægðarinnar.
Alltaf að deita?
Slúðurblöðin eru dugleg að segja að Mila sé að deita hina og þessa Hollywood gaura en hún segir að nítíu prósent af því sé algjört kjaftæði- þetta sé ein tegund af einelti, frá papparössunum, slúðurblöðunum sem búa til lygar og staðhæfa eitthvað sem er ekki satt.
Sátt við holdið
Mila þurfti að missa tæp þrettán kíló fyrir hlutverk sitt í Black Swan en þeir sem hafa séð myndir af henni vita að snótin er ansi smávaxin. Hún segir líkama sinn í sínu eðlilega ástandi núna. Hún sé örugglega tæpum fimmtám kílóum þyngri í vöðvamassa og þyngd! Mila grennti sig einungis fyrir hlutverkið en ekki viljandi.
Þegar hún var að leika í myndinni fannst fólki hún vera á anorexíu jaðrinum og smjattaði og slúðraði um það en þegar hún fór að bæta á sig og vera “normal” aftur þá fannst fólki hún líta betur út sem hálfgerður anorexíusjúklingur – það er greinilega ekki hægt að gera neinum til geðs að hennar sögn!
Henni leið eins og hún væri bara flöt þegar hún var svona létt, engar mjaðmir, enginn rass og algjörlega ekkert form á líkamanum.
Hér að neðan má sjá myndir af skvísunni úr Glamour.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig