Hin tvítuga Miley Cyrus mun ganga í hjónaband fljótlega. Sá heppni er eins og flestir vita hinn gullfallegi Liam Hemsworth.
Miley segir í viðtali við COSMO:
Því stærra sem brúðkaupið verður, því fleira fólk verður til að eyðileggja daginn. Ég vil lítið brúðkaup með fólkinu sem ég elska mest. Mig langar ekki að skoða myndir frá brúðkaupsdeginum mínum og sjá andlit sem ég vildi að hefðu ekki verið í brúðkaupinu… Kommon ég get ekki einu sinni fengið mér kaffi án þess að papparnir elti mig á röndum. Ég veit ekki afhverju fólk heldur að ég vilji stórt brúðkaup. Það er bara svo ekki ég.
Já Miley veit hvað hún vill!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.