Söng og leikkonan Miley Cyrus virðist svo sannarlega vera að reyna allt sem í hennar valdi stendur til þess að kasta af sér Disney ímyndinni og sanna það að hún sé orðin stór stelpa!
Miley kom fram á tónleikum í Hollywood um helgina sem nefnast “Christmas Creampies” og það er óhætt að segja að fatnaður hennar hafi verið ögrandi og Miley komin langt frá Hönnu Montana dögunum.Unglingastjarnan kæddist afar þröngum svörtum buxum ásamt topp sem huldi nánast ekki neitt, hann var mjög fleginn og búbburnar sluppu nánast út ef hún hreyfði sig. Síðan var hún í hnéháum hlébarðastígvélum og með keðju um hálsinn sem tengdist síðan keðju sem hún var með um mittið.
Ekki nóg með það heldur hefðu buxurnar mátt vera aðeins betri í sniðinu. Æ æ æ, Miley er að reyna aðeins OF mikið að fá fólk til að hætta að hugsa um hana sem Hönnu Montana, spurning hvað gerist næst? Við bíðum spennt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig