Söng og leikkonan Miley Cyrus hefur verið dugleg að sýna hárið sitt undanfarið á Twitter.
Miley hefur undanfarið farið ófáar hárgreiðslustofuferðir en hársnyrtirinn hennar heitir Chris McMillan og þau hafa verið að plotta ýmislegt síðastliðnar vikur. Miley skartar nú nýrri hárgreiðslu sem er svokölluð “pixie” klipping, stutt í hliðum og sítt að ofan, hún er einnig orðin platínuljóshærð.
Miklar vangaveltur eru um það hvort Miley sé að gera þetta fyrir hlutverk í gamanþáttunum “Two And A Half Man” en þar á hún að deita Jake litla en Ashton (Walden) á síðan eftir að verða skotinn í henni…….
Miley sagði þetta á Twitter:
““Never felt more me in my whole life ?” “Most successful Sally day EVER! ??? I feel pretty ohhhh so pretty and gayyyy.”
Það er ekkert annað! Hér að neðan má sjá myndir af Miley með nýju greiðsluna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig