Leik og söngkonan Miley Cyrus gekk í gegnum miklar útlitsbreytingar fyrir stuttu fyrir hlutverk sitt í Two And A Half Men.
Þátturinn sem Miley leikur í verður frumsýndur vestanhafs þann 17. október næstkomandi.
Miley leikur dömu að nafni Missy, unga stúlku sem er nýkomin til Los Angeles og fær að gista hjá þeim félögum á meðan hún er að koma sér fyrir í borginni. Missy lendir á séns með Jake en daðrar á sama tíma við karakterinn sem Ashton leikur.
Að sögn stafsmanna á settinu var Miley afar ljúf og lék hlutverkið af mikilli fagmennsku en Missy er svolítið frökk skvísa sem er svarar fyrir sig og rífur kjaft. Miley tók sér alla vikuna að komast í karakter og brilleraði að lokum.
Hér að neðan má sjá nokkar myndir af Miley í hlutverki Missy:
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig