Söng og leikkonan Miley Cyrus og unnusti hennar Liam Hemsworth eru í fríi þessa dagana með fjölskyldunni hans á Costa Rica.
Parið skellti sér á ströndina í fríinu, sátu saman og nutu samverunnar en bæði eru í pásu frá kvikmyndaleik og upptökum um þessar mundir og ákváðu því að fara saman í frí. Chris Hemsworth sem er bróðir Liams og lék Þór svo eftirminnilega er einnig þar ásamt konu sinni Elsu og barni.
Liam er nýorðinn 23 ára gamall en hann hélt upp á afmælið nú fyrr í janúarmánuði.
Parið virðist vera afar ástfangið og núna er bara stóra spurningin sem kaninn stendur á öndinni með: Hvenær ganga þau upp að altarinu?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig