Það er rétt um mánuður síðan að Miley Cyrus og Liam Hemsworth (22) tilkynntu trúlofun sína og eru nú í barneignarhugleiðingum samkvæmt talsmanni þeirra.
Miley sem hefur verið í sviðsljósinu frá því að hún var kornung er að sögn afar spennt fyrir því að stofna fjölskyldu með Liam og hann sé meira en til eftir að bróðir hans Chris eignaðist sitt fyrsta barn. Unnustinn er víst farinn að þrýsta töluvert á Miley að stofna fjölskyldu.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Miley þurft að þroskast hratt fyrir framan myndavélarnar en ætti daman að bíða eilítið með barneignir og njóta þess að vera ein með Liam í nokkur ár -hvað finnst þér?
[poll id=”52″]Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig