Leikkonan Mila Kunis var krýnd “Sexiest Woman Alive” af lesendum karlablaðsins Esquire og Mila tekur við titlinum af engri annari en Rihönnu.
Mila hefur verið lengi í bransanum og hafði þetta að segja um það að týna ekki sjálfri sér og gleyma ekki hvaðan þú kemur:
“Hver ég er og hvað ég geri er tvennt ólíkt og mun alltaf verða þannig. Margir í þessum bransa missa sjónar á því hverjir þeir raunverulega eru og og breytast í einhvern sem þeir vilja vera eða sem almenningur telur á vera.
…segir leikkonan og heldur áfram. “Margt í kringum bransann er gagnrýnt af framleiðendum, leikstjórum og öðrum leikurum. Fólk fer að trúa á gagnrýnina og taka hana það alvarlega að það breytist í þá manneskju sem allir halda að þeir eigi að vera,” segir Mila og bætir við að hún hafi nú aðskilið vinnuna og persónulega lífið.
“Þegar ég er búin að vinna þá er ég búin að vinna. Ef ég myndi hlusta á allt og alla þá myndi ég sjálfsagt breytast í einhverja allt aðra manneskju en ég er og með því myndi ég missa þá arfðleið sem foreldrar mínir hafa gefið mér. Það vil ég alls ekki að gerist, því ég yrði afar vonsvikin ef þau væru ekki stolt af mér og það myndi gerast ef ég myndi týna arfðleið minni og öllu því sem þau hafa kennt mér”.
Það væri dásamlegt ef allar ungar leikkonur myndu taka Milu til fyrirmyndar. Að mínu mati er hún ein sú allra flottasta í bransanum þessa stundina og virðist vita nákvæmlega hvað hún vil -án þess að vera með frekju og leiðindi.
Hér að neðan má sjá kynþokkafullar myndir af kynþokkafyllstu konu heims og HÉR er hún í herferð fyrir Dior.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig