Karl Lagerfeld var alveg djúpur í samtalsviðtali við Carine Roitfeld, fyrrum ritstjóra franska Vouge, á dögunum.
Tilefnið var ný auglýsingaherferð fyrir Barneys í New York, stíliseruð af Carine en þar pósar hún með og án barna sinna sem eru 26 og 28 ára gömul.
“Það getur enginn sagt um þig að þú hafir ekki verið góð móðir,” sagði Karl sannfærandi við Carine. ” Svo ertu líka heppin með hvað þau eru falleg. Það hefði verið mjög erfitt fyrir þig að eiga ljóta dóttur,” sagði Karl sem er 77 ára.
Hann bætti líka við að ef hann hefði sjálfur fæðst sem kona hefði hann eflaust viljað eignast mörg börn en hann trúir ekki á barneignir fyrir karlmenn.
Alltaf jafn hress Karl.
Hér má sjá mynd af Carine pósa í nýrri herferð með syni sínum Vladimir Restoin-Roitfeld (26).
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.