Leikkonan Drew Barrymore hefur ákveðið að fara skynsamlegu leiðina eftir meðgöngu dóttur sinnar Olive og ætlar sér ekki að hamast í ræktinni til þess að létta sig heldur fara rólega í hlutina.
Drew segist ennþá vera að vinna að því að koma sér í form en sé alls ekki að hamast eins og hamstur á hlaupabretti til þess að þóknast samfélaginu.
Leikkonan segist aldrei hafa verið með tip top bikiní-líkama en henni langi samt að líða vel í eigin skinni líkt og aðra.
Móðirin nýbakaða ætlar sér að vera góð við sjálfa sig og fara varlega í sakirnar í þessu ferli, þessi tími sé svo dýrmætur og hún vill eyða sem mestum tíma með litlu dömunni sinni.
Trúir ekki stjörnunum
Drew Barrymore neitar því samt ekki að henni finnist það ótrúlegt þegar Hollywood stjörnur ná sér í form á tveimur vikum eftir barnsburð, sérstaklega þegar þær segjast geta borðað allt án þess að fitna!
Hennar líkami hafi ekki brugðist þannig við og hún finni til smá öfundar gagnvart þeim sem ná að léttast fljótt.
Henni finnst þó mikilvægast að vera hamingjusöm og kát því að hamingjan færir þér svo margt en hún vilji að sjálfsögðu líta vel út í fötum.
Ekki hægt að borða hvað sem er
Drew segist alveg vita að ef hún borðar hvað sem er og hvenær sem er þá muni líkaminn hennar ekki líta eins vel út og hún myndi vilja.
Hún segir að þetta snúist allt um að finna rétta jafnvægið, hún vilji alls enga fullkomnun, hún hreinlega trúi ekki á það að einhver sé fullkomin. Svo satt.
Þessi flotta leikkona segist hafa lært í gegnum tíðina að vinna með það sem hún hefur og fagna því sem henni var gefið, ekki berjast gegn því.
Mestu skipti að vera hún sjálf.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig