Mennska Barbie dúkkan Valeria Lukyanova er búin að finna sér vinkonu sem er næstum því alveg eins og hún sjálf, ótrúlegt en satt!
Vinkonan kallar sig Dominiku en heitir réttu nafni Olga Oleynik og kemur frá bænum Odessa líkt og Valeria.
Konurnar kynntust á netinu fyrir fimm árum og voru ekki lengi að komast að því að þær áttu einstaklega vel saman.
“Okkur fannst svo forvitnilegt hvað við vorum líkar. Við vorum með eins hárgreiðslur, máluðum okkur eins og klæðum okkur mjög svipað. Vinir okkar voru alveg vissir um að við værum systur,” sagði Valeria um vinskapinn.
“Við erum í raun systur, nema bara sálusystur. Við höfum sömu lífsskoðanir og lífsstíl.”
Smelltu HÉR til að skoða fleiri gerðir af dúkkustelpum.
Vinkonurnar hafa upp á síðkastið haft í sig og á með því að halda fyrirlestra um andleg mál og taka um 100 dali fyrir hvert skipti eða rúmar 12.000 krónur.
Margir tala um að þær noti útlitið til að laða til sín viðskiptavini og mögulega á þeim eftir að fjölga stórkostlega á næstunni þar sem stelpurnar plana að flytja í land tækifæranna, Ameríku.
“Kærasti Dominiku býr í Bandaríkjunum og eiginmaður minn er að hugsa um að stofna þar fyrirtæki,” segir Valeria. “Mér á ekki eftir að leiðast heldur. Það er alltaf verið að biðja mig um að koma í myndatökur og partý,” segir hún.
Smelltu HÉR til að lesa um lífsskoðanir Valeriu og sjá af henni fyrir og eftir myndir.
Það verður spennandi að fylgjast með afdrifum þessara andlegu sálusystra í Ameríku.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.