Mel B sem býr núna í Ástralíu er afar annt um að halda líkamanum í góðu formi og lætur ekki eins árs gamla dóttur sína stöðva sig -hún tekur hana með.
Mel B er með einkaþjálfara “down under” og hann lætur hana puða og púla í góða veðrinu í Ástralíu. Mel B og eiginmaður hennar búa í Ástralíu því að Mel er dómari í áströslku útgáfunni af X-Factor.
Mel þarf að sjálfsögðu að halda sér í formi til að “lúkka” vel í mynd og hún gerð meðal annars hnébeygjur, magaæfingar og hlaup á meðan á æfingunni stóð.
Madison dóttir hennar fylgdist áhugasöm með mömmu sinni púla ásamt því að líta annað slagið agndofa á skærappelsínugula bolinn hjá einkaþjálfaranum.
Mel múltítaskaði á æfingunni, gekk og hljóp með kerruna, gerði æfingarnar sínar og svaraði símtölum og var í símanum líka -sannkölluð ofurmamma hér á ferð!
_________________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig