Kryddpían Mel B hefur aldrei verið feimin við að sýna kroppinn sinn en hún lítur glæsiega út þessa dagana.
Í Cosmopolitan UK birtist mynd af Mel B og eiginmanni hennar Stephen Belafonte en ástæða myndbirtingarinnar er að hún er að vekja vitund kvenna á því að skoða brjóstin sín reglulega en það eru samtökin CoppaFeel sem standa fyrir þessu.
Mel B hafði þetta að segja um málefnið:
“Þegar ég var sautján ára þá fann ég smá hnút í brjóstunum mínum og lét athuga það strax, eftir það hef ég alltaf verið dugleg að þreifa á brjóstunum mínum Ég elska brjóst, ég og hinar Kryddpíurnar erum sífellt að káfa á brjóstunum á hvor annari. Geri er nýbúin að káfa á mínum”.
Stephen sagðist einnig vera mikill brjóstamaður og átti því væntanlega ekki í erfiðleikum með að veita hjálparhönd fyrir góðan málstað.
Hér má skoða heimasíðu Coppafeel!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig