Megan Fox mætti á níðþröngum rauðum kjól og hlébarðaskóm á frumsýningu myndarinnar Friends with the Kids á föstudaginn.
Megan, sem er 25 ára, er komin með talsvert lögulegri línur en áður en daman hafði grennst óhóflega á undanförnum mánuðum.
Ástæðuna segir hún vera hráfæði og vegan-isma en svo kallast það þegar engra afurða úr dýraríkinu er neytt, ekki einu sinni mjólkurvara eða eggja.
“Í eitt og hálft ár, eða þar til fyrir hálfum mánuði, er ég búin að vera á ströngu mataræði sem gekk mest út á hráa ávexti og grænmeti,” sagði hún í viðtali við tímaritið Amica. “Ekki heldur neitt brauð, enginn sykur og ekkert kaffi. Ég grenntist of mikið á þessu mataræði og er núna komin aftur í kjötið.”
Gott hjá þér Megan. Of einhæft fæði getur ekki verið skemmtilegt…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.