Megan Fox ætlar að láta fjarlægja Marilyn Monroe tattúið af handleggnum á sér og hún er hætt að borða bara grænmeti.
Hún segir ástæðuna fyrir því að vilja losna við tattúið vera að það stafi ekki nógu góð orka frá Marilyn:
“Það er neikvæður karakter í þessu. Marilyn var með persónuleikaraskanir og var bípólar. Mig langar ekki að bjóða þannig neikvæðri orku í líf mitt.”
Í sama viðtali talar hún um matarvenjur sínar:
“Í eitt og hálft ár, eða bara þar til fyrir einum mánuði, var ég ströng grænmetisæta -borðaði bara ávexti og hrátt grænmeti. Ekkert brauð, enginn sykur og ekkert kaffi… þetta gerði það að verkum að ég grenntist of mikið svo núna er ég aftur farin að borða sitt lítið af hverju og æfi þrisvar í viku með þjálfaranum mínum Harley Pasternak.”
Harley Pasternak er þessi sem kom af stað 5 á dag æðinu sem geysar í Hollywood þessa dagana en Posh Spice komst í fréttirnar þegar hún sagðist borða fimm handfyllir matar á dag.
Kíktu hér á nokkrar tattúmyndir af gellunni:
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.