Hinn nýgifti og verðandi þriggja barna faðir, Matthew McConaughey, undirbýr sig fyrir krefjandi hlutverk í myndinni “The Dallas Buyer’s Club.”
Kvikmyndin fjallar um rafvirkja að nafni Ron Woodroof sem greinist með AIDS árið 1986 og verður saga hans sögð í myndinni.
Matthew sagði þetta um undirbúninginn fyrir myndina:
“Ég leik mann sem verður veikur en hefði svo sannarlega verið til í það að vera heilbrigður. Fyrir mér er undirbúningurin meira andlegur en líkamlegur, ég mun þó fara niður í þá þyngd sem ætlast er af mér fyrir þetta hlutverk, þetta mjakast hægt og rólega og er hluti af starfinu mínu -eitthvað sem ég verð að gera.”
Þess má geta að Matthew þarf að missa um 15 kíló fyrir myndina!
Hér að neðan má sjá hinn fagra Matthew með eiginkonu sinni Camillu ásamt börnum þeirra og hundi og það er auðsjáanlegt að Matthew hefur misst þónokkuð mörg kíló.
_____________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig