Þá er sykursæti leikarinn Matthew McConauhey genginn út. Sú heppna er Brasilíska fyrirsætan Camilla Alves en þau eiga tvö börn saman.
Brúðkaupið fór fram í Texas en Matthew er þaðan og var fagnað í þrjá daga og tvær nætur-geri aðrir betur! Að sjálfsögðu var brúðkaupið fullt af Hollívúdd stjörnum og þar á meðal voru Woody Harelson og Reese Witherspoon.
Kjóll Camillu var hannaður af Ducarmo Castelo Branco en hann er gamall fjölskylduvinur Camillu og fjölskyldu hennar, Matthew var í smóking frá Dolce & Gabbana og kom skart Camillu frá Neil Lane.
Brúðkaupið fór fram að kaþólskum sið og voru börn þeirra Levi og Vida blómastúlka og hringberi og þegar þau gengu inn kirkjugólfið þá beygði Matthew sig niður og þau komu hlaupandi í fangið áhonum, greinilega heimilislegt og kósý!
Gestir og brúðhjónin dönsuðu til þrjú um nóttina og að sögn viðstaddra var brúðkaupið frábær skemmtun!
Hér að neðan má sjá myndir úr brúðkaupinu og veislunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig