Leikarinn Matthew McCaugnahey hefur lokið tökum á kvikmyndinni “Dallas Buyers Club” og það þýðir aðallega eitt: Hann getur farið að borða aftur!
Matthew var á ferðinni í New York borg fyrir ekki svo löngu síðan og það sást greinilega á kappanum að hann er byrjaður að bæta á sig og lítur mun betur út en hér. Matthew lagði mikið á sig fyrir hlutverk HIV sjúklings og vildi vera sem grennstur til að virka sannfærandi í hlutverki sínu.
Matthew er nýbakaður faðir en hann og kona hans Camilla Alves eignuðust litla dömu núna í lok desember og hún er þriðja barn þeirra hjóna.
Matthew sagðist hafa fengið sér ostborgara um leið og hann lauk tökum, naut borgarans í botn og sat í 25 mínútur og borðaði hann!
Leikarar leggja ýmislegt á sig til þess að vera sem mest sannfærandi í hlutverkum sínum, hvort sem það er að grennast, fitna eða massa sig upp en þú getur lesið nánar um það hér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig