Söngkonan, American Idol dómarinn og DÍVAN Mariah Carey á ofursæt tvíburasystkini þau Monroe og Moroccan sem hún vill helst ekki skipta á þegar þau eru búin að gera á sig.
Eiginmaður hennar Nick Cannon var í sjónvarpsviðtali fyrir stuttu og þar opinberaði hann leyndarmál söngkonunnar.
Tvíburarnir eru átján mánaða en Nick segir að þeir ráði mest öllu heima fyrir og að Mariah sé alltaf með sína Dívustæla inn á milli-Hann reynir bara að halda í við þríeykið til þess að týnast ekki í öllum látunum.
Þegar hann var spurður að því hver sé duglegri við bleiuskiptin þá svarar hann “ÉG”.
Hann segir þó að Mariah skipti stundum á tvíburunum en þó lendi hann mun oftar í því að vera að skeina litla bossa, hann óttist ekki bleiuskiptingar og skellir sér í hanska. Já hanska!!
Það munar ekki um það hanskar og dívustælar -hvernig ætli að þetta sé hjá íslenskum dívum, ætli að þær sleppi líka við bleiuskipti, eða noti hanska?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig