Marc Antony hefur loksis tjáð sig um skilnaðinn við J-Lo en hann hefur ekkert sagt eftir að heiminum var tilkynnt þetta í júlí.
Í viðtali við ABC fréttastofuna sagði Marc, sem er 42 ára, að hann ætti alltaf eftir að elska Jennifer.
Hann ber sig víst mannalega og reynir að standa beinn. Djókaði meira að segja á einhverjum tónleikum að nú væri hann á lausu en vinir hans segja að hann sé niðurdreginn og ósáttur við skilnaðinn og hann var greinilega í uppnámi áður en hann fór á svið.
Parið hittist nýlega rétt utan við New York í Hamptons en að sögn upplýsingafulltrúa Anthonys var tilgangurinn bara að eyða smá tíma með tvíburunum Max og Emme sem eru þriggja ára.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.