Söngkonan Madonna lætur aldurinn ekki stöðva sig í því að klæðast efnislitlum og ögrandi klæðnaði á tónleikum.
Hin 54 ára gamla söngkona hélt tónleika í Miami á dögunum og það er óhætt að segja að fatnaður söngkonunnar hafi skilið afar lítið eftir fyrir ímyndunaraflið. Já eða bara sama og ekki neitt.
MDNA tónleikaferð hennar er í fullu fjöri og hún hefur fengið mikla gagnrýni á sig fyrir djarfa framkomu á sviði. Var til að mynda með byssu sem hún beindi að áhorfendum á einum tónleikum í USA og það féll ekki vel í kramið.
En það verður að segjast að kjellan heldur sér í formi, hún er í afar sexý svartri korsilettu, sem dansarinn hennar þrengir og þrengir þangað til hún nær varla andanum en það sem er fyndnast við fatnaðinn er að hún er með svakalega kameltá að framan og það verður að segjast að þetta getur ekki verið þægilegt dress til að koma fram í.
Madonna telur sig þó augljóslega verða að halda í við ungu og djörfu söngkonurnar eins og Rihönnu og Lady Gaga -hún vill sko ekki vera talin eitthvað gamalmenni þó hún nálgist töluna sextíu hratt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig