Leikkonan Lindsay Lohan er sífellt að koma sér í vandræði og henni virðist vera alveg sama um að vera á skilorði vegna þjófnaðar sem átti sér stað í fyrra en þá stal Lindsay hálsmeni úr skartgripabúð.
Þegar Lindsay var við tökur á kvikmyndinni Liz & Dick kynntist hún hjúkrunarfræðingi Elizabeth sem var við hlið hennar í mörg ár og varð afar náin Liz. Svo náin að fröken Taylor gaf henni rándýrt og fallegt armband til að sýna þakklæti sitt. Lindsay varð yfir sig hrifin af armbandinu og leyndi ekki hrifningunni. Lindsay heimsótti hjúkrunarkonuna eitt sinn og viti menn, armbandið hvarf eftir að hún var farin frá henni.
Trúði þessu ekki
Hjúkrunarkonan leyfði Lindsay að njóta vafans í fyrstu og hélt að hún hefði bara gleymt að taka það af sér þegar hún mátaði það en þegar hún hringdi síðar í Lindsay og spurði hana um armbandið þóttist leikkonan ekkert kannast við það.
Að lokum hótaði hjúkrunarfræðingurinn að siga lögreglunni á Lindsay og þá gaf hún eftir og sendi aðstoðarkonu sína til að skila armbandinu.
Á meðan að hjúkkan var að reyna að fá armbandið sitt aftur á Lindsay að hafa sent hjúkrunarkonunni skilaboðin: “Elizabeth væri mjög vonsvikin yfir þér núna”.
Lindsay virðist vera slétt sama um hvað hún gerir þessa dagana. Lýgur og stelur eins og enginn sé morgundagurinn og virðist ekki hafa neitt samviskubit yfir gjörðum sínum, hvað ætli að gerist næst?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig